Yfirlit send út
Yfirlit um lífeyrisréttindi og sundurliðun iðgjalda fyrir fyrri hluta ársins 2016 hafa nú verið send til sjóðfélaga. Við minnum á mikilvægi þess að bera saman launaseðla og iðgjaldagreiðslur og koma athugasemdum á framfæri við sjóðinn eða launagreiðanda ef misræmi er að finna.
Athygli er vakin á því að sjóðfélagar geta ávallt nálgast upplýsingar um réttindi sín og stöðu í séreignarsparnaði með því að skrá sig inn á sjóðfélagavefinn í valmyndinni.