Vextir breytast 1. desember
Stjórn Lífsverks hefur ákveðið að vextir óverðtryggðra
grunnlána til sjóðfélaga verði 6,80% frá og með 1. desember. Jafnframt munu vextir
verðtryggðra grunnlána hækka frá sama tíma og verða 1,70%. Vextir verðtryggðra
lána með föstum vöxtum út lánstímann verða óbreyttir, 3,20%.
Lánað er fyrir allt að 70% af virði eignar samkvæmt kaupsamningi eða nýju fasteignamati. Lánsfjárhæð grunnlána getur numið allt að 70 milljónum króna og viðbótarlána sömu fjárhæð, þannig að heildarlánveiting getur orðið allt að 140 milljónir króna. Viðbótarlán bera 1% vaxtaálag á grunnlán. Fyrstu kaupendum býðst að taka allt að 85% lán hjá sjóðnum.
Lánareglur sjóðsins má nálgast hér: /sjodfelagalan/lanareglur/