Óheimil áform ríkisins baka því skaðabótaskyldu

12.5.2023

Fyrirhuguð löggjöf fæli í sér eignarnám, væri andstæð stjórnarskrá og til þess fallin að baka íslenska ríkinu skaðabótaskyldu sem kynni að hafa í för með sér veruleg viðbótarfjárútlát af hálfu ríkissjóðs í formi dráttarvaxta og kostnaðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athugasemdum tuttugu lífeyrissjóða við áformaskjal ráðherra sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Í athugasemdum lífeyrissjóðanna tuttugu, sem LOGOS lögmannsþjónusta sendi í samráðsgáttina í dag, kemur jafnframt fram að áform fjármála- og efnahagsráðherra séu til þess fallin að kasta rýrð á orðspor íslenska ríkisins og trúverðugleika á fjármálamarkaði. Þau gætu raskað jafnvægi á fjármálamarkaði með ófyrirséðum afleiðingum fyrir eignaverð og hagsmuni fjárfesta. Áform ráðherra séu því illa ígrunduð og geti kostað ríkið umtalsverðar fjárhæðir auk langdreginna málaferla bæði innanlands og erlendis

Hér fyrir neðan má finna athugasemdir þær sem lífeyrissjóðirnir gera við áform ráðherra, auk yfirlits yfir helstu punkta.

Fréttir