Nýr starfsmaður
Herdís Óskarsdóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur í lífeyrismálum.
Herdís er viðskiptafræðingur að mennt, með Cand.Oecon próf frá Háskóla Íslands. Herdís er með fjölbreyttan starfsferil að baki, m.a. úr bankageiranum sem verðbréfa- og lífeyrisráðgjafi og við launarannsóknir hjá Hagstofu Íslands.
Herdís hóf störf sín hjá Lífsverki lífeyrissjóði þann 15. júní síðastliðinn.