Góð ávöxtun á fyrri hluta ársins
Ávöxtun á verðbréfamörkuðum hefur verið mjög hagstæð undanfarna mánuði og hefur það haft jákvæð áhrif á ávöxtun bæði samtryggingardeildar Lífsverks og séreignarleiða sjóðsins.
Ávöxtun á verðbréfamörkuðum hefur verið mjög hagstæð
undanfarna mánuði en nafnávöxtun samtryggingardeildar samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri fyrstu 6 mánuði ársins 2019 nam 9,6% og raunávöxtun 7,9%.
Þá er ávöxtun þó ekki reiknuð á ársgrundvelli. Á sama tíma í fyrra var
nafnávöxtun 2,4% og raunávöxtun 1,1%.
Ávöxtun séreignarleiða frá áramótum var einnig góð. Lífsverk 1, sem er áhættumesta leiðin og er blönduð leið skuldabréfa og hlutabréfa, skilaði 13,5% nafnávöxtun. Nafnávöxtun Lífsverk 2, sem leggur meiri áherslu á innlend skuldabréf, var 10,8% og Lífsverk 3, með áherslu á innlán, skilaði 3,7% nafnávöxtun. Ávöxtunartölur miðast allar við fyrstu 6 mánuði ársins 2019 og eru ekki reiknaðar á ársgrundvelli.
Lífsverk lífeyrissjóður hefur markvisst stefnt að auknu hlutfalli erlendra eigna á árinu. Hlutfall erlendra eigna sem hlutfall af heildareignasafni er nú 24,8% en var 22,6% um síðustu áramót. Skv. fjárfestingastefnu ársins 2019 er stefnt að því hlutfall erlendra eigna verði nálægt 30% í árslok en markmið samkvæmt fjárfestingastefnu ársins 2018 var 21%.