Framlenging ráðstöfunar séreignarsparnaðar
Umsækjendur með virka ráðstöfun þurfa að sækja um að gildistími umsóknar sé framlengdur fyrir 30.sept 2019.
Ríkisskattstjóri hefur heimilað áframhaldandi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán til og með 30. júní 2021,sbr. lög nr. 60/2019 sem breyttu lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Umsækjandi með virka ráðstöfun getur nú skráð sig inn á www.leidretting.is og óskað eftir að gildistími umsóknar sé framlengdur. Sækja þarf um framlengingu í síðasta lagi 30. september 2019. Eftir það tímamark virkjast ráðstöfun aðeins aftur frá þeim mánuði þegar þær berast.