Fjórir í framboði um eitt stjórnarsæti.
Rafrænt stjórnarkjör til aðalstjórnar Lífsverks fer fram á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins dagana 31. mars – 4. apríl.
Allir sjóðfélagar njóta kosningaréttar, þ.e. sem greitt hafa til samtryggingardeildar sjóðsins og eiga hjá honum réttindi og á það einnig við um elli- og örorkulífeyrisþega.
Kosið er að þessu sinni um eitt stjórnarsæti.
Framboðsfresti lauk 17. mars sl. og bárust fjögur framboð innan frestsins um eitt laust stjórnarsæti. Kjörnefnd hefur úrskurðað um lögmæti þeirra og teljast þau öll gild.
Fyrir liggur að Georg Lúðvíksson, núverandi stjórnarmaður, gefur ekki kost á sér til endurkjörs.
Í framboði eru eftirtaldir:
Kristján Arinbjarnar - Kynning
Margrét Elín Sigurðardóttir - Kynning
Pálmar Sveinn Ólafsson - Kynning - Ferilskrá
Reynir Leví Guðmundsson - Kynning