Eyrún Björnsdóttir hefur verið ráðin í móttöku og iðgjaldaskráningu
Eyrún hefur áralanga reynslu af hinum ýmsu þjónustu- og skrifstofustörfum, nú síðast hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
"Ég hlakka til að kynnast starfsemi Lífsverks, hinu góða starfsfólki og sjóðfélögum."
Eyrún hefur þegar hafið störf hjá sjóðnum.
Starfsfólk Lífsverks býður Eyrúnu velkomna til starfa.