Dagskrá aðalfundar
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 19. maí kl. 17:00.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2019 kynntur
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt
- Fjárfestingarstefna og áhættustýring
- Greint frá úrslitum rafræns stjórnarkjörs
- Kosning varastjórnarmanna
- Kosning endurskoðanda og tveggja fulltrúa í endurskoðunarnefnd
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Ákvörðun um laun stjórnarmanna og endurskoðunarnefndar
- Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum má sjá hér . Ársskýrsla ásamt ársreikningi 2019 hefur verið birt á vefsvæði sjóðsins, hér .
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu meðan á honum stendur. Þeir sjóðfélagar sem hyggast nýta sér það eru beðnir um að skrá sig á lifsverk@lifsverk.is í síðasta lagi kl. 12 á aðalfundardegi og fá þá uppgefna slóð til að tengjast.