17% fjölgun nýrra sjóðfélaga fyrri hluta árs
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða, því fjölgar nýskráningum mest við brautskráningar háskólanna eða þegar nýútskrifaðir hefja störf á vinnumarkaðnum. Nýjum sjóðfélögum fjölgaði um 17% á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. Það er greinilegt að Lífsverk er góður valkostur þegar velja á lífeyrissjóð til framtíðar.
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða, því fjölgar sjóðfélögum mest við brautskráningar háskólanna eða þegar nýútskrifaðir hefja störf á vinnumarkaðnum. Fyrri hluta árs fjölgaði sjóðfélögum 17% umfram þá fjölgun sem átti sér stað á sama tíma 2017. Það er greinilegt að Lífsverk er góður valkostur þegar velja á lífeyrissjóð til framtíðar.
Lífsverk lífeyrissjóður stofnaður 1954
LÍfeyrissjóður verkfræðinga var stofnaður árið 1954 og var um margt brautryðjandi á lífeyrismarkaði á Íslandi. Upprunalega var sjóðurinn aðeins opinn verkfræðingum en í dag er hann opinn öllum þeim sem lokið hafa grunnnámi á háskólastigi. Lífsverk var fyrsti sjóðurinn sem byggði á aldurstengdum réttindum, sem tryggir sjóðfélögum réttindi í takt við þann tíma sem þeir hafa greitt í sjóðinn. Það þýðir að því yngri sem sjóðfélagi er þegar hann byrjar að greiða í lífeyrissjóð því hærri verða réttindi hans fyrir hverja greidda krónu.