Afkoma Lífeyrissjóðs verkfræðinga á árinu 2011
Jákvæð þróun varð á ávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins á milli ára.
Á árinu var ráðist í stefnumótun sem lið í uppbyggingu sjóðsins til framtíðar. Í kjölfarið var lokið við gerð áhættustefnu sem skilgreinir áhættustýringu sjóðsins, gerð fjárfestingarstefnu var breytt auk þess sem gerðar hafa verið breytingar á verkferlum og innra starfi sjóðsins. Markmiðið er að ná jafnvægi í ávöxtun eigna til langs tíma.
Jákvæð þróun varð á ávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins á milli ára. Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 6,4% á árinu 2011 og raunávöxtun 1,1% samanborið við 0,4 % nafnávöxtun og -2,2% raunávöxtun á árinu á undan. Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris var 33.621 m.kr. og hækkaði um 12% á milli ára. Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% á árinu. Nafnávöxtun án niðurfærslna á árinu 2011 var 7,8% og raunávöxtun 2,5 %. Innlend skuldabréf gáfu bestu ávöxtun eignaflokka í samtryggingardeild.
Helstu tölur í milljónum króna | 2011 | 2010 |
---|---|---|
Heildariðgjöld | 2.213 | 2.105 |
Heildarlífeyrisgreiðslur | 452 | 434 |
Fjárfestingartekjur | 2.067 | 208 |
Fjárfestingargjöld | 102 | 91 |
Rekstrarkostnaður | 77 | 70 |
Hækkun á hreinni eign | 3.622 | 1.718 |
Hrein eign til greiðslu lífeyris | 33.621 | 29.999 |
Fjöldi virkra sjóðfélaga | 2.588 | 2.595 |
Fjöldi lífeyrisþega | 241 | 235 |
Kennitölur | 2011 | 2010 |
Nafnávöxtun | 6,4% | 0,4% |
Raunávöxtun | 1,1% | -2,2% |
Hrein nafnávöxtun | 6,1% | 0,2% |
Hrein raunávöxtun | 0,9% | -2,4% |
Hrein raunávöxtun sl. 5 ár | -7,8% | -6,2% |
Tryggingafræðileg staða | -6,8% | -8,7% |
Hlutfallslegar greiðslur af iðgjöldum ársins | 20,0% | 21,0% |
Hlutfall erlendrar eignar í eignasafni | 21,8% | 25,3% |