Aukið val sjóðfélaga þegar kemur að sjóðfélagalánum
Stjórn hefur samþykkt nýjar verklagsreglur um lán til sjóðfélaga sem tóku gildi 2. desember s.l.
Stjórn hefur samþykkt nýjar verklagsreglur um lán til sjóðfélaga sem tóku gildi 2. desember s.l.
Helstu atriði felast í eftirfarandi:
- Heildarlánsfjárhæð frumláns hækkuð í 15m.kr. (3,70% vextir í dag. Lánið er verðtryggt.)
- Þeir sjóðfélagar sem hafa tekið 100% lán geta nú aukið við frumlán upp í 15 m.kr.
- Viðbótarlán ber fasta vexti sem nú eru 4,30% í stað 5%. (Þeir ákvarðast sem 0,60% álag á vexti frumláns 3,70%). Lánið er verðtryggt.
- Veðhlutfall hækkað í 75% af markaðsvirði fasteignar.
- Lánstími 5 – 40 ár.
- Val um jafnar afborganir eða jafngreiðslulán.
- Veðhlutfall er 65% af markaðsvirði fasteignar í smíðum.
- Veð getur verið sumarhús en þá er veðhlutfallið 35% af markaðsvirði.
Nánar verður gerð grein fyrir breytingunum í fréttabréfi til sjóðfélaga í byrjun febrúar.