Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 19. apríl kl. 17:00.
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík,
þriðjudaginn 19. apríl kl. 17:00.
Nánari dagskrá verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins ásamt tillögum að breytingum á samþykktum sem borist hafa.
Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 11.-15. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.
Kosið verður rafrænt um einn aðalmann í stjórn (karl eða konu), auk þess sem einn varamaður verður kosinn á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 23. mars. Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins.
Hér er að finna reglur um framkvæmd stjórnarkjörs: