Breytingar á skattprósentum og persónuafslætti
Þann 1.janúar 2015 hækka viðmiðunartekjur í öllum skattþrepum
Þann 1. janúar 2015 breyttust skattþrep vegna staðgreiðslu og verða sem hér segir:
Mánaðarlaun | Skattprósenta |
---|---|
0-309.140 | 37,30% |
309.141.- 836.403 | 39,74% |
836.404 | 46,24% |
Persónuafsláttur verður 50.902 krónur á mánuði.
Lífeyrisþegar þurfa að gefa upp skattþrep sem nota á við útreikning á útgreiðslum. Vekjum athygli á mikilvægi þess að útgreiðslur fari í rétt skattþrep og að hægt er að setja sig í samband við starfsfólk Lífsverks og fá ráðgjöf.