Afkoma sjóðsins á árinu 2013
Ávöxtun Lífsverks var góð á árinu 2013 þegar tekið er mið af áhættustigi fjárfestingarleiða sjóðsins og fjárfestingarmöguleikum. Allar leiðirnar skiluðu jákvæðri nafn- og raunávöxtun á árinu.
Ávöxtun Lífsverks var góð á árinu 2013 þegar tekið er mið af áhættustigi fjárfestingarleiða sjóðsins og fjárfestingarmöguleikum. Allar leiðirnar skiluðu jákvæðri nafn- og raunávöxtun á árinu.
Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar var á bilinu 4,6-14,3% á árinu 2013 og nafnávöxtun samtryggingardeildar var 8,7%.
Sjóðurinn stækkaði um 14,2% á árinu og námu heildareignir beggja deilda, samtryggingar og séreignar, um 51,3 milljörðum króna. Hrein eign í árslok 2013 til greiðslu lífeyris í samtryggingardeild var 44.511 m.kr. og í séreignardeild 6.848 m.kr.
Samkvæmt tryggingafræðilegri athugun voru heildareignir samtryggingardeildar 1,3% umfram heildarskuldbindingar í árslok og var staða sjóðsins því jákvæð.
Lífsverk er blandaður lífeyrissjóður sem starfrækir samtryggingardeild og þrjár leiðir í séreignardeild. Af 12% skylduframlagi í lífeyrissjóðinn fer 10% til samtryggingardeildar en 2% til séreignardeildar nema sérstaklega sé óskað eftir að allt skylduframlagið skuli fara í samtryggingardeildina.
Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 8,7% og raunávöxtun 4,8% samanborið við 10,5% nafnávöxtun og 5,8% raunávöxtun árið 2012. Sjá má nánari upplýsingar um afkomu samtryggingardeildar í töflunni hér til hliðar.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 3,7% á árinu og gengi krónunnar styrktist um rúm 9%.
Séreignarleiðir sjóðsins hafa nú fengið ný nöfn en eru með óbreytta fjárfestingarstefnu.
Nafnávöxtun Lífsverks 1, áður Séreignarleið 2, var 14,3% og raunávöxtun var 10,3%. Hrein eign í árslok var 734m.kr. og jókst um 30% á milli ára. Nafnávöxtun Lífsverks 2, áður Séreignarleiðar 1, var 5,1% og raunávöxtun 1,4%. Hrein eign í árslok nam 6.045m.kr. og hækkaði um 15% á milli ára. Nafnávöxtun Lífsverks 3, áður Séreignarleiðar 3, var 4,6% og raunávöxtun 0,9%. Hrein eign í árslok var 69m.kr. og hækkaði um 27%.
Nánari upplýsingar verða veittar á aðalfundi sjóðsins sem fram fer þann 10. apríl n.k. að Engjateigi 9, kjallara.