Góð ávöxtun séreignarleiða
Góð ávöxtun hefur verið á öllum séreignarleiðum sjóðsins það sem af er ári.
Góð ávöxtun hefur verið á öllum séreignarleiðum sjóðsins það sem af er ári.
Ávöxtun ársins í lok nóvember:
Leið | Nafnávöxtun | Raunávöxtun |
---|---|---|
Séreignarleið 1 |
5,5% |
2,2% |
Séreignarleið 2 |
13,7% |
10,1% |
Séreignarleið 3 |
4,5% |
1,2% |
Séreignarleið 1 fjárfestir eingöngu í innlendum skuldabréfum með áherslu á ríkistryggð bréf. Séreignarleið 2 fjárfestir í innlendum og erlendum hlutabréfum ásamt innlendum skuldabréfum. Séreignarleið 3 fjárfestir í innlánum og stuttum ríkistryggðum bréfum.
Þróun ávöxtunarkröfu ríkistryggðra bréfa hefur verið með öðru sniði í ár miðað við undanfarin ár. Eftir nokkurra ára lækkunarferli hefur þróunin snúist við og ávöxtunarkrafan hefur hækkað það sem af er ári. Ástæðan fyrir því er m.a. sú að mikil óvissa hefur ríkt um Íbúðalánasjóð og verðbólga hefur verið minni en markaðsaðilar gerðu ráð fyrir.
Góður gangur hefur verið á helstu hlutabréfamörkuðum heimsins en heimsvísitala hlutabréfa sem gefin er út af Morgan Stanley hefur hækkað um 21,7% mælt í dollar. Á móti hefur gengi krónunnar styrkst um 6,3% sem dregur niður ávöxtun erlendra hlutabréfa. Þá hefur hlutabréfavísitala Kauphallar Íslands hækkað um 15,7%.