Ný lög um neytendalán taka gildi.
Sjóðfélagalán Lífsverks falla undir ný lög um neytendalán.
Þann 1. nóvember sl. tóku gildi ný lög um neytendalán og falla lán Lífsverks til sjóðfélaga undir þessa nýju löggjöf. Lögin byggja á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/48/EB, um lánasamninga og neytendur. Tilgangur með innleiðingu á nýjum lögum er að auka neytendavernd og tryggja samræmt lagaumhverfi við veitingu neytendalána. Helstu breytingar í nýju lögunum eru meðal annars að nú þarf til viðbótar við greiðslumat að liggja fyrir lánshæfismat skuldara auk þess sem auknar kröfur eru gerðar til lánveitenda varðandi upplýsingar um kostnað og vexti láns áður en lánssamningur er gerður.
Nánari upplýsingar er að finna hér