Helstu niðurstöður aðalfundar
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga var haldinn 22. maí sl. á Grand Hótel Reykjavík.
Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga var haldinn 22. maí sl. á Grand Hótel Reykjavík. Fundinn sóttu um 40 manns. Á fundinum flutti Þráinn Valur Hreggviðsson, formaður stjórnar ávarp.
Auður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins, kynnti ársreikning sjóðsins vegna ársins 2012 ásamt nýrri fjárfestingarstefnu og áhættustýringu. Afkoma sjóðsins var góð á árinu 2012 og sú besta frá árinu 2006. Sjóðurinn í heild stækkaði um 16,5% á árinu og er hrein eign nú um 45 milljarðar króna.
Tryggingastærðfræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, kynnti niðurstöður tryggingafræðilegrar athugunar. Tryggingafræðingar birtu nýjar lífslíkur í árslok 2012 sem lengja meðalævi karla og kvenna og hafði þau áhrif að skuldbindingar sjóðsins jukust um 1,2%. Þrátt fyrir það batnaði tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar á árinu vegna jákvæðrar þróunar á ávöxtun sjóðsins og lækkunar á réttindum í samræmi við áætlun aðalfundar frá árinu 2009. Samþykkt var að lækka áunnin réttindi og lífeyrisgreiðslur um 5,5% á árinu sem lokaaðgerð í ofangreindri áætlun um að ná jafnvægi í tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins eftir árið 2008.
Á fundinum voru lagðar fram og kynntar almennar tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins og voru þær samþykktar samhljóða.
Kosið var um nýjan ytri endurskoðanda sjóðsins og var tillaga stjórnar um að KPMG yrði fyrir valinu samþykkt.
Nýr stjórnarmaður í aðalstjórn var kjörin Ásbjörg Kristinsdóttir. Í varastjórn voru kjörin: Brynja Baldursdóttir, Jón Lárus Stefánsson, Björn Ágúst Björnsson og Halldór Árnason.