Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga
Aðalfundur Lífsverks verður haldinn miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 17:00
Aðalfundur Lífsverks verður haldinn miðvikudaginn 22.maí nk. kl. 17:00 á Grand Hótel, Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
- Hefðbundin aðalfundarstörf
- Tillögur til breytinga á samþykktum
- Önnur mál, löglega upp borin
Kosið verður um 1 stjórnarmann og 4 varamenn í stjórn sjóðsins. Í lögum og samþykktum sjóðsins kemur fram að hlutfall annars kynsins í stjórn sjóðsins skal aldrei verða lægra en 40%. Þeim sjóðfélögum sem hafa hug á að bjóða sig fram er boðið að kynna sig stuttlega á heimasíðu sjóðsins og eru þeir beðnir um að hafa samband við starfsmenn sjóðsins.