Lífsverk óskar eftir að ráða sérfræðing í eignastýringu
Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða sérfræðing í eignastýringu með
áherslu á innlent hlutabréfasafn sjóðsins. Í boði er spennandi og krefjandi starf hjá ört vaxandi lífeyrissjóði
þar sem viðkomandi fær tækifæri til að móta starf sitt innan
eignastýringarteymis sjóðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á stýringu innlendra hlutabréfa
- Greining hlutabréfamarkaðar og fjárfestingarkosta
- Ákvarðanir um fjárfestingar í samræmi við fjárfestingarstefnu sjóðsins
- Samskipti við verðbréfafyrirtæki og aðila á fjármálamarkaði
- Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda sjóðsins
- Sækja upplýsinga- og kynningarfundi tengda starfinu
- Önnur tilfallandi verkefni á eignastýringarsviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, ss. á sviði fjármála, viðskipta, hag-, eða verkfræði
- Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
- Haldgóð starfsreynsla við eignastýringu eða á fjármálamarkaði
- Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og niðurstöður með skipulögðum hætti
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Gott vald á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Auglýsing á vef Intellecta: Lífsverk_sérfræðingur í eignastýringu