Iðgjald hækkar í 14% frá 1. júlí
Mótframlag launagreiðenda á almennum markaði hækkar 1. júlí úr 8,5% í 10,0% og verða þá heildariðgjöld launþega og launagreiðenda 14,0%.
Mótframlag launagreiðenda á almennum markaði hækkar
1. júlí úr 8,5% í 10,0% og verða þá heildariðgjöld launþega og launagreiðenda 14,0%.
Þetta er liður í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins sem kveður á um hækkun mótframlags launagreiðenda í áföngum til 1. júlí á næsta ári, en þá verða heildariðgjöld launþega og launagreiðenda 15,5%.
Sjóðfélögum Lífsverks hefur gefist kostur á svonefndri „blandaðri leið“ sem felur í sér ráðstöfun á hluta af skylduiðgjaldi í séreign.
Iðgjaldi sjóðfélaga sem valið hafa þá leið og er umfram 10% verður áfram ráðstafað í séreign viðkomandi og verður engin breyting frá því sem verið hefur, utan þeirrar hækkunar sem verður með auknu mótframlagi.
Sjóðfélagar Lífsverks geta óskað eftir því að allt iðgjaldið eða stærri hluti þess renni til samtryggingar.