Góð ávöxtun á fyrri hluta ársins
Hrein eign Lífsverks 30.júní 2017 nam 77,2 milljörðum króna.
Ávöxtun Lífsverks fyrstu 6 mánuði ársins 2017 var góð en á tímabilinu var hækkun á innlendum hlutabréfamarkaði auk þess sem vaxtalækkanir Seðlabankans höfðu góð áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Góð ávöxtun var einnig á erlendum hlutabréfamörkuðum en styrking krónunnar dró þó úr ávöxtun erlendra eigna í krónum talið. Nafnávöxtun samtryggingardeildar Lífsverks fyrstu 6 mánuði ársins 2017 var 3,3% og hrein raunávöxtun, að teknu tilliti til kostnaðar, var 2,0%.
Hrein eign Lífsverks 30. júní 2017 nam 77,2 milljörðum króna en var til samanburðar 73,0 milljarðar um síðustu áramót. Eignir sjóðsins hafa því aukist um 4,2 milljarða fyrstu sex mánuði ársins.
Ávöxtun séreignaleiða á tímabilinu var einnig góð. Áhættumesta leiðin, Lífsverk 1, sem er blönduð leið skuldabréfa og hlutabréfa, skilaði 4,4% nafnávöxtun á tímabilinu. Lífsverk 2, sem leggur meiri áherslu á innlend skuldabréf, var með 4,3% nafnávöxtun og Lífsverk 3, með áherslu á innlán, skilaði 2,7% nafnávöxtun. Ávöxtunartölur miðast allar við fyrstu 6 mánuði ársins 2017.
Stærsti hluti eigna samtryggingardeildar sjóðsins er í skuldabréfum, sem nema 39,6 milljörðum og eignarhlutum í félögum og sjóðum, sem nema 24,9 milljörðum. Mikill vöxtur var í veðlánum til sjóðfélaga en fyrstu sex mánuði ársins voru veitt ný lán til 127 sjóðfélaga, samtals að fjárhæð 2,8 milljarðar og hefur ásókn í lán aldrei verið jafnmikil hjá sjóðnum.
Greidd iðgjöld til sjóðsins námu 2,2 milljörðum króna og lífeyrisgreiðslur námu 439 milljónum. Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum er 23,8%. Hreinar fjárfestingartekjur námu alls 2,5 milljörðum. Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður í hlutfalli af eignum er 0,17% og fjárfestingargjöld í hlutfalli af eignum er 0,02%.