Dagskrá aðalfundar
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 20. apríl kl. 17:00.
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn að Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 20. apríl kl.17:00.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur 2020 kynntur
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt
- Fjárfestingarstefna og áhættustýring
- Greint frá úrslitum rafræns stjórnarkjörs
- Kosning varastjórnarmanna
- Kosning endurskoðanda og tveggja fulltrúa í endurskoðunarnefnd
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Ákvörðun um laun stjórnarmanna og endurskoðunarnefndar
- Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum má sjá hér . Ársskýrsla ásamt ársreikningi 2020 má finna hér.
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu meðan á honum stendur. Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá þátttöku á fundinum með því að hafa samband við skrifstofu sjóðsins með tölvupósti á lifsverk@lifsverk.is. Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í beinu streymi eru beðnir um að skrá sig í síðasta lagi kl. 12 á aðalfundardegi og fá þá uppgefna slóð til að tengjast.
Ef nauðsynlegt reynist að fresta fundinum vegna samkomutakmarkana verður það auglýst á vefsvæði sjóðsins.