Björn Ágúst áfram í stjórn Lífsverks
Björn Ágúst Björnsson, stjórnarformaður Lífsverks, sóttist eftir endurkjöri og mat kjörnefnd framboð hans gilt.
Framboðsfrestur til stjórnar Lífsverks rann út 12. mars sl. Tvö framboð bárust innan tilskilins frests en annað var dregið til baka. Björn Ágúst Björnsson, stjórnarformaður Lífsverks, sóttist eftir endurkjöri og mat kjörnefnd framboð hans gilt.
Framboðsfrestur til stjórnar Lífsverks rann út 12. mars sl. Tvö framboð bárust innan tilskilins frests en annað var dregið til baka. Björn Ágúst Björnsson, stjórnarformaður Lífsverks, sóttist eftir endurkjöri og mat kjörnefnd framboð hans gilt. Björn Ágúst er því sjálfkjörinn í stjórn Lífsverks til næstu þriggja ára.
Einungis átti að kjósa um eitt sæti að þessu sinni. Fyrir liggur því að stjórn Lífsverks verður óbreytt frá og með næsta aðalfundi en stjórnina skipa auk Björns, Agnar Kofoed-Hansen, varaformaður, Eva Hlín Dereksdóttir, Margrét Arnardóttir og Unnar Hermannsson.