Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00.
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík, þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00.
Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 9.-13. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins. Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem þrír varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 19. mars.
Nánari dagskrá verður send sjóðfélögum með aðalfundarboði og er einnig að finna á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.
Rafrænt stjórnarkjör fer fram dagana 9.-13. apríl nk. á sjóðfélagavef á vefsvæði sjóðsins.
Kosið verður rafrænt um tvo aðalmenn í stjórn (karl og konu), auk þess sem þrír varamenn verða kosnir á aðalfundi. Framboðsfrestur til aðalstjórnar er til 19. mars.
Framboðum skal skilað til skrifstofu sjóðsins, b.t. kjörnefndar, ásamt minnst fimm og mest tíu meðmælendum úr hópi sjóðfélaga. Þeir sjóðfélagar sem hafa hug á því að bjóða sig fram eru hvattir til að hafa samband við starfsmenn sjóðsins til að koma á framfæri stuttri kynningu til birtingar á vefsvæði sjóðsins.
Um hæfiskilyrði stjórnarmanna vísast til 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Hér er að finna reglur um framkvæmd stjórnarkjörs:
Reglur um framkvæmd stjórnarkjörs