Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2025 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Icelandair Group 2025

12. mars 2025

Rafrænn aðalfundur Icelandair Group hf. árið 2025 var haldinn fimmtudaginn 12. mars klukkan 16:00.

DagskrárliðurLagt fram afAfgreiðsla*     
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár Kynning
Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinuStjórnSamþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmannaStjórnSamþykkt
Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnuStjórnHjáseta
Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar Kynning
Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd Sjálfkjörið
Kosning stjórnar félagsins Sjálfkjörið
Tilnefning til endurskoðunarnefndar StjórnSamþykkt
Kosning endurskoðandaStjórnSamþykkt
Breytingar á samþykktum félagsins
a. Breyting á lögheimili félagsins Stjórn Samþykkt
Heimild til kaupa á eigin bréfum Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.