Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2025 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Iceland Seafood 2025

26. mars 2025

Aðalfundur Iceland Seafood International hf. 2025 var haldinn 26. mars kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

DagskrárliðurLagt fram afAfgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina liðins árs Kynning
Ársreikningur fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingarStjórnSamþykkt
Ákvörðun um ráðstöfun taps fyrir liðið starfsárStjórnSamþykkt
Ákvörðun um starfskjarastefnuStjórnSamþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnar og undirnefndaStjórnSamþykkt
Kosning stjórnar og varastjórnar Sjálfkjörið
Kosning endurskoðandaStjórnSamþykkt
Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefndStjórnSamþykkt
Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga og aukningu hlutafjárStjórnSamþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér