Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2025 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Embla Medical

12. mars 2025

Aðalfundur Embla Medical hf. 2025 var haldinn miðvikudaginn 12.mars kl. 09:00 í höfuðstöðvum félagsins að Grjóhálsi 1-3.

DagskrárliðurLagt fram afAfgreiðsla*
Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári 
Kynning
 Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins fyrir fjárhagsárið 2024 StjórnSamþykkt 
 Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til samþykktar StjórnSamþykkt 
Skýrsla stjórnar um starfskjarastefnu
Kynning
Staðfesting starfskjarastefnuStjórnHjáseta
Ákvörðun um þóknun stjórnarStjórnSamþykkt
Kosning stjórnar Sjálfkjörið
Kosning endurskoðandaStjórn

Sjálfkjörið

Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutumStjórnSamþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér