Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Solid Clouds 2024

30. apríl 2024

Aðalfundur Solid Clouds hf. árið 2024 var haldinn þriðjudaginn 30. apríl kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*      
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári   Kynning
Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda þess til samþykktar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári og ákvörðun um arðgreiðslur Stjórn Samþykkt
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins  

Sjálfkjörið

Kjör endurskoðanda félagsins Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins Stjórn

Samþykkt

Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar Stjórn Samþykkt
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin    
Tillaga stjórnar um breytingu á 8. gr. samþykkta félagsins Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um að félagið fái heimild til að kaupa eigin hluti Stjórn

Samþykkt

Kynning á framþróun nýjasta leik félagsins, Starborne Frontiers   Kynning

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

 

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér