Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Sjóvá 2024

7. mars 2024

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. var haldinn fimmtudaginn 7. mars 2024 kl. 15:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári   Kynning
Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins Stjórn Samþykkt
Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum Stjórn Samþykkt
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins Stjórn Samþykkt
Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum nefndarinnar   Kynning
Kosning stjórnar félagsins   Sjálfkjörið
 Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags  Stjórn Samþykkt 
Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar Stjórn Samþykkt**
Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum með framkvæmd endurkaupaáætlunar Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

** Breytingartillaga borin upp af stjórnarformanni samþykkt

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér