Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Össurar 2024

13. mars 2024

Aðalfundur Össurar hf. 2024 var haldinn miðvikudaginn 13. mars kl. 09:00 í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 5.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
 Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári    Kynning
Ákvörðun um greiðslu arðs fyrir síðastliðið reikningsár Stjórn Samþykkt
Framlagning ársreiknings félagsins til staðfestingar Stjórn Samþykkt
Skýrsla stjórnar um starfskjarastefnu  

Kynning

Staðfesting starfskjarastefnu Stjórn Hjáseta
Ákvörðun um þóknun stjórnar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um heimild til að gefa út bundin hlutabréfaréttindi Stjórn Hjáseta
Tillögur um breytingar á samþykktum Stjórn Samþykkt
Kosning stjórnar   Sjálfkjörið
Kosning endurskoðanda Stjórn

Sjálfkjörið

Tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfa Stjórn

Samþykkt

 Tillaga um heimild félagsins til að koma á fót endurkaupaáætlun  Stjórn  Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.