Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Nova 2024

21. mars 2024

Aðalfundur Nova hf. 2024 var haldinn fimmtudaginn 21. mars kl. 16:00 að Lágmúla 9, 108 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*        
Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári   Kynning
 Skýrsla forstjóra og ársreikningur   Kynning
Endurskoðaðir ársreikningar félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til samþykktar Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins Stjórn

Samþykkt

Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins til þess að tryggja rétt kynjahlutföll í stjórn félagsins Stjórn Samþykkt
Skýrsla starfskjaranefndar   Kynning
Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins Stjórn Hjáseta
Tillaga stjórnar um þóknun til stjórnarmanna og nefndarmanna í endurskoðunarnefnd, starfskjaranefnd og tilnefningarnefnd Stjórn

Samþykkt

Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar  

Kynning

Stjórnarkjör  

Sjálfkjörið

Kjör tilnefningarnefndarmanna  

Sjálfkjörið

Tilnefning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um kjör endurskoðenda Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55. gr. hlutafélagalaga Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.