Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Marel 2024

20. mars 2024

Aðalfundur Marel hf. árið 2024 fór fram miðvikudaginn 20. mars klukkan 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ.

Dagskrárliður Lagt fram af        Afgreiðsla*                          
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár   Kynning
Skýrsla forstjóra   Kynning
Ársreikningar félagsins fyrir starfsárið 2023 lagðir fram til staðfestingar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað fyrir starfsárið 2023 Stjórn Samþykkt
Tillaga um starfskjarastefnu félagsins Stjórn Hjáseta
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna árið 2024 Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um greiðslu til endurskoðanda fyrir liðið starfsár Stjórn Samþykkt
Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins    
9.1. Tillaga um endurnýjun heimildar í grein 15.1. í samþykktum félagsins. Greinin heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé um allt að 35 milljónir að nafnvirði í tengslum við kaupréttarsamninga við starfsmenn. Stjórn Hjáseta
9.2. Tillaga um endurnýjun heimildar í grein 15.2. í samþykktum félagsins. Greinin heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé um allt að 75 milljónir að nafnvirði sem nota má í tengslum við fyrirtækjakaup. Stjórn Samþykkt
 Kosning stjórnar félagsins:    
 Ann Elisabeth Savage    X
 Arnar Þór Másson    X
 Ástvaldur Jóhannesson    X
 Lille Li Valeur    X
 Ólafur Steinn Guðmundsson    X
 Svafa Grönfeldt    X
 Ton van der Laan    X
 Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis  Stjórn Samþykkt 
Tillaga um að endurnýja heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér