Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Kviku banka 2024

21. mars 2024

Aðalfundur Kviku banka hf. var haldinn kl. 16:00 þann 21. mars 2024 á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár   Kynning
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu Stjórn Samþykkt
Tillaga um endurnýjun á heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf Stjórn Samþykkt
Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins Stjórn Samþykkt
Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins   Sjálfkjörið
Tillögur um tilnefningarnefnd Stjórn Samþykkt
Tillaga um að komið verði á fót tilnefningarnefnd  

Samþykkt

Tillaga um breytingar á samþykktum   Samþykkt
Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar   Samþykkt
Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd   Samþykkt 
Tillaga um staðfestingu á skipun tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd   Samþykkt 
Tillaga um starfskjarastefnu félagsins   Stjórn Samþykkt 
Kosning endurskoðenda félagsins  Stjórn Samþykkt 
Tilnefning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd   Stjórn Samþykkt 
Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar félagsins  Stjórn Samþykkt 
Ályktunartillaga Gildis um tilnefningarnefnd   Gildi Samþykkt 

 

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.