Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Ísfélags hf. árið 2024

24. júní 2024

Aðalfundur Ísfélags hf. var haldinn kl. 16:00 miðvikudaginn 17. apríl 2024. Fundurinn var haldinn rafrænt og á Tangagötu 1, Vestmannaeyjum.

DagskrárliðurLagt fram afAfgreiðsla*                  
Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári Kynning
Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinuStjórnSamþykkt
Tillögur stjórnar um starfskjarastefnuStjórnSamþykkt
Kosning stjórnar Sjálfkjörið
Kosning endurskoðandaStjórn
Samþykkt
Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna og nefndarmanna í endurskoðunarnefndStjórn Samþykkt
Tilnefning tveggja utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefndStjórn

Samþykkt

Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfumStjórn

Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér