Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Icelandair Group 2024

7. mars 2024

Rafrænn aðalfundur Icelandair Group hf. árið 2024 var haldinn fimmtudaginn 7. mars klukkan 16:00.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*     
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár   Kynning
Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna Stjórn Samþykkt
Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu Stjórn Hjáseta
Skýrsla og tillögur tilnefningarnefndar um skipan stjórnar   Kynning
Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd   Sjálfkjörið
 Kosning stjórnar félagsins  

Sjálfkjörið

 Tilnefning til endurskoðunarnefndar  Stjórn Samþykkt
Kosning endurskoðanda Stjórn Samþykkt
Kaupréttakerfi Stjórn

Hjáseta

Breytingartillaga Hluthafa

Hjáseta

 Breytingar á samþykktum félagsins    
 a. Heimild til að auka hlutafé í tengslum við kaupréttarkerfi  Stjórn  Hjáseta
 b. Samræming við lög og loftferðir  Stjórn  Samþykkt
 c. Breyting á skipun tilnefningarnefndar  Stjórn  Samþykkt
 Heimild til kaupa á eigin bréfum  Stjórn  Samþykkt
 Tillaga frá hluthafa um hagkvæmni þess að leysa félagið upp  Hluthafa  Á móti

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.