Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Iceland Seafood 2024

21. mars 2024

Aðalfundur Iceland Seafood International hf. 2024 var haldinn fimmtudaginn 21. mars kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina liðins árs   Kynning
Ársreikningur fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um ráðstöfun taps fyrir liðið starfsár Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um starfskjarastefnu Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnar og undirnefnda Stjórn Samþykkt
Kosning stjórnar og varastjórnar   Sjálfkjörið
Kosning endurskoðanda Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd Stjórn Samþykkt
Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér