Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Hampiðjunnar 2024

22. mars 2024

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. 2024 var haldinn föstudaginn 22. mars kl. 16:00 að Skarfagörðum 4, Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2023   Kynning
Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2023 Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar Stjórn Samþykkt
Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins Stjórn   Samþykkt
Kosning stjórnar félagsins     
a. Kosning formanns  

Sjálfkjörið

b. Kosning fjögurra meðstjórnenda   Sjálfkjörið
Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd Stjórn Samþykkt
Kosning endurskoðunarfélags Stjórn Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér