Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Fly Play 2024

7. mars 2024

Aðalfundur Fly Play hf. 2024 var haldinn miðvikudaginn 7. mars í Iðnó, menningarhúsi við Tjörnina, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*                
Skýrsla stjórnar fyrir rekstrarárið 2023   Kynning
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 lagður fram til samþykktar Stjórn Samþykkt
Atkvæðagreiðsla um meðferð rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2023 Stjórn Samþykkt
Stjórnarkjör   Sjálfkjörið
Kosning endurskoðanda Stjórn Samþykkt
 Kosning utanaðkomandi aðila í endurskoðunarnefnd félagsins Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um kjör stjórnarmanna, varamanna í stjórn og undirnefndum stjórnar Stjórn

Samþykkt

Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu Stjórn Hjáseta
Tillaga stjórnar að stjórnar að kaupréttarkerfi ásamt tillögu um breytingu á samþykktum félagsins sem heimilar stjórn að hækka hlutafé í tengslum við kaupréttarkerfið Stjórn  Hjáseta
 Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins til að heimila stjórn að hækka hlutafé félagsins Stjórn   Samþykkt
 Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins Stjórn   Samþykkt

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér