Meðferð atkvæðisréttar

Lífsverk leitast við að sækja hluthafafundi þeirra félaga sem sjóðurinn á eignarhlut í. Almennt styður Lífsverk tillögur stjórnar á hluthafafundum, enda sé þess gætt að langtímahagsmunir félagsins fari saman við hagsmuni sjóðfélaga.

Meðferð Lífsverks á atkvæðisrétti í stjórnarkjöri á hluthafafundum skráðra félaga 2024 og frávik frá tillögum stjórnar er birt hér að neðan.

Aðalfundur Eimskipafélags Íslands 2024

7. mars 2024

Aðalfundur Eimskiptafélags Íslands hf. 2024 var haldinn fimmtudaginn 7. mars kl. 15:00 að Sundabakka 2, 104 Reykjavík.

Dagskrárliður Lagt fram af Afgreiðsla*          
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári   Kynning
Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár Stjórn Samþykkt
Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2023 Stjórn Samþykkt
Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum skv. gr. 11.2 í samþykktum félagsins Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun og breytingu á samþykktum félagsins Stjórn Samþykkt
Tillaga stjórnar um breytingu á grein 8.2 oí samþykktum félagsins Stjórn Samþykkt
Tillaga um starfskjarastefnu félagsins Stjórn Hjáseta
Kosning stjórnar félagsins   Sjálfkjörið
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar Stjórn Samþykkt
 Kosning endurskoðenda  Stjórn Samþykkt 
Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd Stjórn Samþykkt
     

*Afgreiðsla fulltrúa Lífsverks á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.